23. ágúst 2006 klukkan 17:33
20. ágúst 2006 klukkan 23:24
Guð inn góður.. Þynnkan í hámarki hérna á sólvöllum... ástandið engan veginn ásættanlegt þar sem ég á ekki inneign, engan pening, engar sígarettur og ekkert að éta.. Daddi reddaði mér þokkalega áðan og kom með Max og DVD.. takk kallinn minn.. Það versta í heimi er að eiga engar gardínur og reyna að horfa á DVD í glaðasólskini.. ég veit ekkert hvað er gerast..
17. ágúst 2006 klukkan 19:44
Daddinn tók upp VISA kortið um daginn og ætlaði að panta sér föt af netinu.. Fyrirtækið er staðsett í Svíþjóð og einhverja hluta vegna senda þeir ekki til Íslands.. Daddinn tók sig til og smellti línu á þá til að spurjast fyrir um þetta mál..
Eftirfarandi er pósturinn hans Dadda:-----Original Message-----
From: Daði Steinsson
Sent: den 16 augusti 2006 13:55
To: Customerservice Zoovillage
Subject: Shipping!
I was wandering....do you send to Iceland? i was just
becoming a member and i could not put my right address
becouse i could not select Iceland as my home country!!
Why is that??
Hann beið í nokkra daga og síðan fékk hann svarið frá
fávísum Svía:
Hello!!
The reason is that we only ship to Europe!
Mvh,Kundtjänst
www.zoovillage.com
Behåll gärna kedjan av svar i svarsbrevet.
Svíarnir alveg með þetta enda þvílíkir fagmenn..
05. ágúst 2006 klukkan 00:29
Fyrsta bloggið frá Sólvöllum 15a er að verða að veruleika.. þeir sem vilja koma í heimsókn í vetur verða að commenta.. nema doktor, hann commentar alltaf svo leiðinlega hérna þannig að ég vil ekkert fá einhvern skít hérna..væri nett að gera svona síðu eins og mosó gengið eða yrði það bara léleg eftirherma af of svölu gengi?og já, kobbi.. bjór í kvöld?
26. júlí 2006 klukkan 21:10
LungA afstaðin og var það ein gargandi snilld.. Gauti og Gulli Garðars gerðu góð ferð austur og vil ég þakka þeim fyrir fegurðina sem þeir komu með sér.. Gott ball og allt að gerast, slagsmál og vesen..
En framundan er samt þvílík helgi.. olli í þriggja daga frí frá laugardegi til þriðjudags og tekur vel á því á bogganum.. seinasti leikurinn í riðlinum í utandeildinni á laugardaginn á móti hetti og með jafntefli vinnum við hann.. hann verður háður klukkan tvö á laugardaginn næsta á borgarfirði...
Annars Tóti ætlar að koma á tónleika ;) og svo var ég að heyra að svanur ætli að koma og jukka í bræðslunni á milli tónleika.. Doktorinn er eitthvað tæpur en ég held að hann komi nú samt þar sem konan hans verður þarna.. Ásta Kristín mætir sennilega ekki þar sem hún ætlar að vera á fásk með Brynju að kúka á sig úr leiðindum.. klárlega slappt.. Melludólgurinn mætir seint um kvöldið með sínu fylgdarliði og svo kemur fólk úr öllum andskotanum og mætir á þennan stórviðburð..
bæjó
p.s. Tóti setti nýtt heimsmet í seinustu færslu í lengsta kommenti á bloggsíðu.. einhver maður í að challenga tóta?!
25. júlí 2006 klukkan 17:23
Af hverju fórum við ekki í sannleikann eða kontor? varst þú ekki í framkvæmdarnefnd?
22. júlí 2006 klukkan 18:34
þynnkan svífur yfir vötnum hér í BT.. verst að Daddinn sé ekki með mér hérna til að njóta hennar til fulls..
Kvöldið í kvöld í kvöld í kvöld verður vonandi helpakkað og eins og Gulli Garðars myndi orða það þá verða menn moldaðir.. Nema hann sjálfur þar sem hann svaf yfir sig eða eitthvað álíka.. þetta var ég heyra frá Daddanum..
Við erum að flytja inn í sólvelli 15 A og kobbi og andri vinna hörðum höndum að gera þetta íbúðarhæft.. frekar subbuleg hola en allt að skána..
svo kemur mosó gengið í dag, doktorinn kom reyndar í gær og fór að kela við helgu jónu með kela..
UMFB að meika það í boltanum í dag! við erum efstir í okkar riðli í Malavinnslubikarnum með tíiu stig og erum nánast öruggir inn í úrslitakeppnina.. Vonum bara að Hattarar tapi fyrir þórshöfn um helgina og þá vinnum vð riðilinn með sigri á þristinum á sunnudaginn.. það yrði snilld!!!
Svo er auðvitað stór helgi framundan eftir viku.. 950 mann tónleikar á Borgarfirði eystra með Emilíönu Torrini, Mugison og Belle and Sebastian.. gargandi snilld!! Verst að Magni getur ekki verið meðal oss þar sem hann er víst að meika það í USA..
bæ
17. júlí 2006 klukkan 18:01
Kallinn kominn í frí.. í dag..
ég og Daddinn vorum alveg á kúpunni á laugardaginn og trylltum lýðinn með skemmtiatriðum á hetjunni ! ! Mættum svo gríðarlega þunnir í vinnu á sunnudaginn og það var talið að við höfðum slegið nýtt met á þynnkuskala BT og var áfengislyktin svo mikil að það frusu tvær tölvur út af áfengiseitrun ! ! Stjána hlotnaðist mikill heiður í gær en fékk hringingu frá Dirk Künst, yfirbruggara Heineken verksmiðjunnar í Þýskalandi og var strákurinn útnefndur "fulli maður laugardagsins".. Til hamingju Stjáni.. Annars var þetta frekar ósanngjarnt þar sem að við hittum mann á Hetjunni sem átti þennan titil mun meira skilið.. réttara sagt voru þetta bræður sem hefðu átt skilið að deila þessum titli sín á milli..
Margt og mikið er að ske næstu vikur og þið sem getið ekki séð ykkur fært að láta sjá ykkur skulið hafa samband við kolbein í síma 865-4562 og tilkynna forföll.. Þið sem vitið ekki hvað er að gerast næstu vikur skulið bara vera heima þar sem þið vitið eki betur..
hilsen, olli peters..
og já, það er bannað að commenta..
11. júlí 2006 klukkan 19:55
þetta er auðvitað hárétt hjá doktornum enda er hann maðurinn með svörin.. seinasta blogg var ekki að gera sig.. hann er klárlega maðurinn sem maður leitar til þegar mann vantar ráðleggingar og annað slíkt... Hann hefur uppá síðkastið haft lítið að gera í vinnunni þannig að ég gruna að hann sé sí jukkandi í blöndunartækin í lauginni.. annars er það bara einhver illur grunur.. en hvað er annars málið í vetur.. eitthvað er verið að tala um egs áfram og leigja með vel völdum félögum eða fara suður í ruglið með ágústi og óla gústa.. Sjæse, veit minnst um það!! ef einhver getur reddað mér góðri vinnu hvort sem það er á egs eða í rvk þá er allar ábendingar vel þegnar í kommentum..
Annars vil ég bara benda á stórleik í kvöld á Eiðavelli milli UMFB - Hattar kl 20:30
Mætiði eða veriði ferhyrnt . .
11. júlí 2006 klukkan 03:14
ég var að hugsa um að taka aspasinn á þetta þar sem sú umræða um að hann myndi snúa aftur í bloggheiminn kom upp í partý á seyðis á laugardaginn.. Guð blessi hann og vonum að hann snúi aftur sem fyrst til fyrri starfa..
Ég er með tvennt fyrir ykkur að gera til heiðurs strýtunni...
Númer 1.
Gilsárteigur - Mörgæs - Skeggi Garðars/Eiki Tittur - Ostskeri - Túlípani - Hafliði Bjarki Magnússon . .
Sá sem kemur með bestu söguna úr þessum stykkorðum fær bjór á barnum næst þegar leiðiir okkar liggja saman.. Lengd eða innihald skipta ekki máli, bara að þessi orð komi fram í henni
Númer 2.
Með hverju kommenti á að fylgja ástæða fyrir því að Presturinn eigi að snúa til baka og verður þessu síðan safnað saman og sent til ágústu og hafsteins þar sem þau eru talin vera lykilinn að endurkomunni
olli peters